Fara beint í efni

Persónuvernd

Persónuverndarstefna og vafrakökur

Síðast uppfært 29. september 2026

Ábyrgðaraðili

Þrep ehf, Skipholti 50b - Reykjavík, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram í tengslum við þennan vef. Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á threp@threp.is eða í síma 575 0800.

Hvaða upplýsingum er safnað

Á vefnum eru hvorki innskráning né eyðublöð. Hafir þú samband við okkur með tölvupósti eða í síma notum við þær upplýsingar sem þú veitir, svo sem nafn, netfang og efni erindisins, eingöngu til að svara þér og veita umbeðna þjónustu.

Upplýsingar sem viðskiptavinir afhenda okkur vegna bókhalds, endurskoðunar eða ráðgjafar eru unnar á grundvelli samnings og þeirra lagaskyldna sem gilda um starfsemina og falla ekki undir þessa stefnu.

Vafrakökur og vefgreining

Við notum Google Analytics til að sjá hvernig vefurinn er notaður, t.d. hvaða síður eru skoðaðar. Það er aðeins virkjað ef þú smellir á „Samþykkja“ í vafrakökuborðanum. IP-tölur eru styttar (nafnlausar) áður en þær eru vistaðar. Google Analytics setur vafrakökurnar _ga og _ga_*, sem gilda í allt að 2 ár. Þjónustuna veitir Google Ireland Ltd. og gögn kunna að verða flutt til Bandaríkjanna á grundvelli gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU–US Data Privacy Framework).

Val þitt er vistað í vafranum þínum (localStorage) svo borðinn birtist ekki aftur. Það er nauðsynlegt fyrir virkni vefsins og er ekki notað til að rekja þig.

Kort

Kortið neðst á síðunni er mynd sem geymd er á okkar vefþjóni. Gagnvirkt Google-kort hleðst aðeins ef þú smellir á „Sýna gagnvirkt kort“; þá berast Google upplýsingar á borð við IP-tölu þína og Google kann að setja vafrakökur samkvæmt persónuverndarstefnu Google.

Hýsing

Vefþjónninn skráir tæknilegar upplýsingar um heimsóknir, svo sem IP-tölu, tíma og hvaða síða var sótt, í öryggisskyni og til að tryggja rekstur vefsins. Þær upplýsingar eru ekki notaðar til að bera kennsl á einstaklinga.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við vinnum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, andmæla vinnslu og afturkalla samþykki hvenær sem er. Hafðu samband á threp@threp.is. Sért þú ósátt(ur) við vinnsluna getur þú leitað til Persónuverndar, www.personuvernd.is.

Vinnslan fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.